Að sögn Svanfríðar Louise Jones, hjá Kajakferðum á Stokkseyri, hefur gengið mjög vel að bóka í ferðir sumarsins.
,,Þetta er bara meira en glæsilegt og gos hafði ekki hafa nein áhrif á bókanir hjá okkur,” sagði Svanfríður. Svo virðist sem markaðsstarf fyrirtækisins sé að skila sér en félagið er í samstarfi við innlendar og erlendar ferðaskrifstofur um bókanir auk eigins sölustarfs.
Að sögn Svanfríðar hafa orðið nokkrar breytingar á samsetningu ferðamanna og eru nú erlendir ferðamenn í meirihluta. Taldi hún hlutfall þeirra vera komið í um 60% gesta.
Félagið býður upp á kajakferðir á lónum og tjörnum við Stokkseyri og auk Svanfríðar eru tveir fastráðnir starfsmenn þar.