Sú breyting mun eiga sér stað um næstu áramót að sá hluti núverandi Kaldadalsvegar (550) sem liggur frá Þingvallavegi (36) að vegamótum við Uxahryggjaveg (52) mun verða hluti Uxahryggjavegar.
Þannig mun vegur 52 liggja frá Þingvallavegi alla leið að Borgarfjarðarbraut (50). Þessi breyting tekur gildi frá og með 1. janúar 2020.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að töluverður munur sé á vegtegundum á Kaldadalsvegi og þykir eðlilegra að þessi syðri hluti hans tilheyri Uxahryggjavegi. Þessi breyting er m.a. hugsuð fyrir ferðamenn, á leið á milli Suðurlands og Vesturlands, sem slysast þannig síður inn á veg sem hentar ekki öllum farartækjum jafn vel.