Nú gefst sá möguleiki að fá veðurspá fyrir öll lögbýli landins og fjölmörg eyðibýli að auki á vefnum blika.is.
Þar hafa bæst við yfir 6 þúsund staðsetningar en fyrir voru um 3 þúsund örnefni, veðurstöðvar, skálar og gististaðir á landinu á vefnum, en einnig sumarhúsalönd, golfvellir, veiðihús, eyjar, fjallstindar og fleira um land allt
Blika.is tengir saman skrár yfir örnefni og fínkvarða veðurspár ekki ósvipað og „norsku“ spárnar sem margir þekkja á yr.no. Nema að Blika.is reiknar sitt eigið veðurlíkan í hraðvirkum tölvum fjórum sinnum á dag í þéttriðnu neti með klukkustundar upplausn. Möskvarnir eru 3 km á meðan spár yr.no yfir Íslandi eru með 12 km á milli reiknipunkta.
Veðurþjónustan á blika.is er öllum opin og aðgengileg. Vefurinn er einfaldur og hraðvirkur og er sérstaklega sniðinn að snjallsímum.
Að sögn Einars Sveinbjörnssonar hjá Veðurvaktinni er spákerfi vefsins í stöðugri þróun. Væntanleg er ensk útgáfa og gæði spánna mun batna með gervigreind. Þá er keyrð endurgreining aftur í tímann þar sem veðurmælingar koma við sögu. Tilraunir á nokkrum stöðum s.s. í Reykjavík og á Ísafirði lofa þar góðu.
„Veðurspárnar eru hluti af sjálfvirknivæðingunni í samfélaginu. Miklir möguleikar felast í tengingu kerfa og miðlun til notenda á skýran og aðgengilegan hátt,“ segir Einar.