Kærunefnd útboðsmála hefur fellt úr gildi ákvörðun Vegagerðarinnar að semja við GT verktaka ehf. og Borgarvirki ehf. um breikkun og endurgerð Reykjavegar í Biskupstungum en tilboð í verkið voru opnuð í janúar.
Borgarvirki og GT verktakar áttu lægsta tilboðið í verkið og þar á eftir kom Þjótandi ehf. Vegagerðin tilkynnti lægstbjóðendum að samið yrði við Þjótanda þar sem Borgarvirki og GT verktakar uppfylltu ekki kröfur útboðsins hvað varðar fjárhagsstöðu. Fyrirtækin gerðu athugasemd og fengu frest til þess að skila inn frekari gögnum.
Tilboði Borgarvirkis og GT verktaka var aftur hafnað þann 31. janúar þar sem viðbótargögnin voru ófullnægjandi en fyrirtækin fengu þá enn á ný tækifæri til þess að leggja fram frekari gögn og ákvað Vegagerðin í kjölfarið að ganga til samninga við þau.
Þjótandi ehf kærði ákvörðunina en fyrirtækið taldi að Vegagerðin hefði raskað jafnræði bjóðenda með því að víkja frá skilmálum útboðsins. Kærunefndin úrskurðaði Þjótanda í vil og felldi ákvörðun Vegagerðarinnar úr gildi auk þess sem henni er gert að greiða Þjótanda 600 þúsund krónur vegna málskostnaðar.
Í úrskurðinum segir að fyrir liggi að skilmálar hins kærða útboðs voru skýrir um að vísa bæri frá tilboði hefði fyrirtæki sem tengdist stjórnendum og helstu eigendum bjóðenda orðið gjaldþrota síðastliðin fimm ár.
Endurgerð Reykjavegar er stórt verk sem vinna á á tveimur árum en tilboð Þjótanda í verkið hljóðaði upp á rúmar 575,2 milljónir króna.