Vegfarendur eru beðnir að vera ekki á ferðinni á Þjóðvegi 1 á milli Hvolsvallar og Víkur milli kl. 18 og 22 í kvöld þar sem reiknað er með miklu hvassviðri. Jafnvel getur komið til lokunar á þessum kafla.Einnig eru vegfarendur varaðir við að vera á ferðinni í Öræfasveit á sama tíma.
Vegur 218 sem liggur út í Dyrhólaey er nú lokaður þar sem vatn flæðir yfir veginn.
Það hvessir mikið við suðurströndina og í Öræfum með kvöldinu. Austan 22-28 m/s frá kl. 17 til 22 undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Fljótshlíð og eins í Öræfum.
Vindhviður allt að 50 m/s þar sem verst lætur en víða 35-45 m/s.