Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur ákveðið að loka veginum frá Seyðishólum sem liggur í vesturátt.
Ástæðan er sú að sumarhúsaeigendur hafa ítrekað kvartað vegna þungaflutninga úr námu sem er í suðurhluta Seyðishóla og nýlega sendi Félag sumarhúsaeigenda í Kerhrauni sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps kröfu um að námunni yrði lokað eða að komið yrði í veg fyrir efnistöku úr henni.
Námueigandinn sem nytjar námuna getur þó ekið með efnið úr henni í austurátt og út á Búrfellsveginn.
Sumarhúsaeigendur munu þó ekki vera fyllilega sáttir við þessi málalok og vilja að umræddur vegur verði byggður upp.