Spáð er aftakaveðri víða á landinu á morgun og miðvikudag og hefur Veðurstofan gefið út appelsínugula viðvörun sem gildir frá kl. 15 á morgun, þriðjudag.
Búast má við samgöngutruflunum og lokunum á vegum og hefur Vegagerðin gefið út töflu varðandi líklegar veglokanir og má sjá hana hér að neðan. Reynt verður eftir fremsta megni að halda aðalleiðum opnum.
Fólki er bent á að ganga frá lausum munum og sýna varkárni. Dregur úr vindi aðfaranótt miðvikudags, en bætir þá í vind undir Eyjafjöllum og má búast við 23-33 m/s á þeim slóðum þar til seint á miðvikudag.
Vegnr. | Vegkafli | Möguleg lokun |
1 og 39 | Suðurlandsvegur (frá Rauðavatni að Hveragerði) um Hellisheiði og Þrengsli | kl.12:00 þriðjudag 10.des til kl.13:00 miðvikudag 11.des |
1 | Markarfljót undir Eyjafjöllum | kl.15:00 þriðjudag 10.des til kl.16:00 miðvikudag 11.des |
1 | Vesturlandsvegur um Kjalarnes | kl.13:00 þriðjudag 10.des til kl.13:00 miðvikudag 11.des |
1 | Vesturlandsvegur um Hafnarfjall | Kl.14:00 þriðjudaginn 10.des til kl.13:00 miðvikudag 11.des |
36 og 365 | Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði | Kl.13:00 þriðjudaginn 10.des til kl.13:00 miðvikudagin 11.des |
41 | Reykjanesbraut | Kl.12:00 þriðjudaginn 10.des til kl.13:00 miðvikudaginn 11.des |
43 | Grindavíkurvegur | Kl.12:00 þriðjudaginn 10.des til kl.13:00 miðvikudaginn 11.des |
427 | Suðurstrandarvegur | Kl.13:00 þriðjudaginn 10.des til kl.13:00 miðvikudaginn 11.des |