Ekki tókst að selja veiðihús og veiðirétt í Soginu en Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsti fyrir um mánuði síðan þessar eignir til sölu.
Um er að ræða glæsilegt veiðihús sem hreppurinn leigði Stangveiðifélagi Reykjavíkur um árabil. Sex tilboð bárust en sveitarstjórn ákvað að hafna þeim öllum. Var ákveðið að leita tilboða í heilsársleigu á ánni og húsinu til næstu þriggja ára en tveir aðilar höfðu greint frá áhuga sínum á að leigja í stað þess að kaupa.