Karlmaður var í dag fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans eftir að hann féll í Fossá við Hjálparfoss í Þjórsárdal.
Mbl.is greinir frá.
Maðurinn var við veiðar með bróður sínum þegar atvikið átti sér stað. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er hann ekki alvarlega slasaður.
Þegar maðurinn féll í ána fylltust vöðlur hans af vatni sem gerði það að verkum að hann sökk í ána. Bróðir hans stökk út í á eftir honum og náði að koma honum upp á bakkann hinum megin.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu missti maðurinn meðvitund um stund en rankaði fljótlega við sér.
Þyrla Landhelgisgæslunnar mætti á staðinn klukkan 13:40 og fékk hann aðhlynningu hjá sjúkraflutningamönnum á staðnum áður en hann var fluttur á slysadeild Landspítalans.