Andlega veikur einstaklingur brást illa við og veittist að lögreglumönnum sem hugðust veita honum aðstoð um helgina.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi og þar er tekið fram að engin meiðsli urðu, hvorki á árásarmanninum eða lögreglumönnunum.
Maðurinn var handtekinn og honum veitt viðeigandi aðstoð innan heilbrigðiskerfisins.