Það voru um fjörutíu ungmenni sem tóku þátt í ungmennaþingi í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn síðastliðinn föstudag.
Ungmennaráð Ölfuss stóð fyrir þinginu þar sem unga fólkið fékk tækifæri til að ræða um ýmis málefni í sveitarfélaginu og koma með sína skoðun og tillögur til breytinga.
Þetta er í þriðja skipti sem haldið er ungmennaþing og hefur unga fólkið alltaf verið duglegt að mæta, enda ungmennaráðið skipað öflugu fólki sem er duglegt að koma hugmyndum og skoðunum unga fólksins á framfæri.