Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út síðdegis í dag vegna vélhjólaslyss á Bræðratunguvegi, milli Reykholts og Flúða.
mbl.is greinir frá þessu
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurlandi var einn maður fluttur með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi. Slysið varð um kl. 15:30 og var þyrlan lent við Landspítalann fyrir kl. 17.