Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið að Drekavatni á Landmannaafrétti til að bjarga tveimur vélsleðamönnum sem fóru í gegnum krapa á vatninu.
Ekkert amar að mönnunum en þeim hefur ekki tekist að komast upp úr krapanum, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Standa þeir á sleðunum og mun áhöfn þyrlunnar koma þeir til bjargar úr sjálfheldunni.
Björgunarsveitir eru einnig á leið á vettvang og munu þær annast flutning á vélsleðunum til byggða.
mbl.is greinir frá þessu