Neytendastofa athugaði í júní síðastliðnum hvort samræmi væri á milli hillu- og kassaverð í tuttugu verslunum í Árborg og Hveragerði.
Um leið var athugað hvort að verðmerkingar væru í lagi og hvort vogir í kjörborði matvöruverslana væru löggiltar.
Þegar könnuninni var fylgt eftir fyrir skömmu kom í ljós að níu fyrirtæki höfðu ekki farið eftir fyrirmælum Neytendastofu um að lagfæra verðmerkingarnar hjá sér.
Í Bónus í Hveragerði og á Selfossi, og í Krónunni á Selfossi voru allflestar vörurnar sem skoðaðar voru rétt verðmerktar þó örfá tilvik hafi komið upp þar sem verð vörunnar var hærra á kassa en töluvert var um óverðmerktar vörur í verslununum.
Byko á Selfossi hafði bætt ástandið á óverðmerktum vörum frá fyrri heimsókninni en í þeirri síðari var talsvert um ósamræmi á hillu- og kassaverði. Ekki voru gerðar athugasemdir við hillu- og kassaverð né við aðrar verðmerkingar í Húsasmiðjunni í fyrri könnunarferðinni.
Við seinni könnun á veitingastöðum kom í ljós að veitingastaðurinn Hoflandsetrið í Hveragerði hafði enn ekki sett inn upplýsingar um magn drykkja á matseðilinn.
Neytendastofa mun halda áfram verðmerkinga- og verðkannanaeftirliti sínu og gera athugun hjá fleiri verslunum.
Neytendur geta komið ábendingum á framfæri í gegnum rafræna Neytendastofu.