Talsverð eftirvænting ríkir meðal ferðaþjónustuaðila á Laugarvatni vegna opnunar gömlu gufunnar eða Laugarvatn Fontana þann 1. júlí nk.
Að sögn Smára Stefánssonar, sem rekur tjaldstæðin á Laugarvatni, gætir talsverðar eftirvæntingar meðal ferðaþjónustuaðila á svæðinu. „Laugarvatn hefur hingað til verið hálfgerð pylsusjoppa en gufubaðið kemur vonandi til með að hægja á umferðinni. Við verðum vonandi meira en bara sjoppustopp,“ sagði Smári.
Undir þetta tekur Baldur Öxdal Halldórsson, veitingamaður í Lindinni. Hann sagðist gera ráð fyrir talsverðri breytingu í ferðaþjónustunni á Laugarvatni með opnun gufunnar. „Annars er mikil tilhlökkun fyrir mann sjálfan að komast aftur í gufu,“ sagði Baldur.
Ferðaþjónustuaðilar á Laugarvatni hugsa sér gott til glóðarinnar og er víða verið að auka framboð af afþreyingarmöguleikum auk þes sem unnið hefur verið að breytingum á gisti- og veitingastöðum. Á Laugarvatni eru tvö Edduhótel, farfuglaheimili og svo er bændagisting víða í kring.