Verkís hf. bauð lægst í gatna- og lagnahönnun í Björkurlandi á Selfossi en tilboð voru opnuð í gær.
Tilboð Verkís hljóðaði upp á rúmlega 67,6 milljónir króna. Orbicon Arctic As. átti næst lægsta tilboðið, rúmlega 69,1 milljón króna. Hnit ehf bauð rúmlega 79,9 milljónir króna í verkið og Mannvit hf rúmlega 88,3 milljónir.
Öll tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun sveitarfélagsins sem hljóðaði upp á rúmlega 57,3 milljónir króna.
Verkið felur í sér verkhönnun á götum, gangstéttum, gatnamótum, hringtorgi, hönnun á leiksvæðum, grasmönum og göngustígum, fráveitu, vatnsveitu og blágrænum ofanvatnslausnum í þessari nýju íbúðabyggð syðst í Selfossbæ.