Verknámshús FSu stækkar

Í síðustu viku var undirritaður samningur um viðbyggingu við Hamar, verknámshús Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Það voru fulltrúar sveitarfélaga og héraðsnefnda á Suðurlandi sem skrifuðu undir, en fulltrúar ráðuneyta mennta- og fjármála eiga eftir að staðfesta samninginn fyrir hönd ríkisvaldsins.

Í samningnum er gert ráð fyrir 1600 fermetra húsi undir verknám af ýmsu tagi. Sveitarfélögin hafa þegar lagt mikið fjármagn í viðbygginguna og vonast er til að ríkið starfi í anda eigin stefnu um að efla iðnmenntun og semji um sinn hlut innan tíðar.

Í frétt á heimasíðu FSu kemur fram að hefja þurfi hönnun og framkvæmdir sem fyrst því þörfin sé brýn fyrir meira og fjölbreyttara verknám á svæðinu.

Fyrri greinBusarnir baðaðir í sósu
Næsta grein„Smyrillinn kaus að vera Vinstri-grænn“