Viðey í Þjórsá friðlýst

Viðey í Þjórsá verður friðlýst á morgun, miðvikudag, að ósk landeigenda. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, mun undirrita friðlýsinguna í ráðuneytinu.

Viðey, eða Minna-Núpshólmi, er 3,37 ha að stærð og verður friðlýst sem friðland. Eins og sunnlenska.is hefur greint frá fór stofnunin fram á umsögn Landgræðslu ríkisins og Náttúrufræðistofnunar Íslands sem ályktuðu báðar um ótvírætt verndunargildi Viðeyjar og lögðu til að að eyjan verði friðlýst.

Eyjan er sérstök m.a. vegna þeirrar umgerðar sem straumþung áin veitir. Mikilvægi svæðisins felst einnig í möguleika á samanburði t.d. birkisins, sem þar hefur vaxið án teljandi áhrifa mannsins, við birki annarsstaðar í landinu. Í Viðey hafa fundist yfir 70 háplöntutegundir, þar af tvær tegundir sjaldgæfar á landsvísu.

Markmið friðlýsingarinnar er að vernda náttúrulegan, lítt snortinn og gróskumikinn birkiskóg ásamt því lífríki sem honum fylgir. Einnig er markmið friðlýsingarinnar að vernda erfðaeiginleika og erfðafjölbreytileika birkisins og annars gróðurs í eynni. Markmið friðlýsingarinnar er enn fremur að treysta verndargildi Viðeyjar í Þjórsá, sérstaklega vísinda- og fræðslugildi.

Með friðlýsingu Viðeyjar í Þjórsá er verið að styrkja líffræðilega fjölbreytni vistgerða og vistkerfa svæðisins með því að vernda tegundir plantna og annarra lífvera ásamt erfðaauðlindum sem tegundirnar búa yfir og búsvæði þeirra. Í friðlýsingarskilmálunum segir m.a. að ef af virkjunum verði í neðri Þjórsá muni Umhverfisstofnun sjá til þess að friðlandið verði girt af til að vernda lífríki svæðisins fyrir mönnum og dýrum.

Fyrri greinRíkið áfrýjar í Sólheimamáli
Næsta greinSUS þing í Hveragerði um helgina