Þessa dagana standa SASS – Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og Markaðsstofa Suðurlands fyrir viðhorfskönnun á meðal Sunnlendinga um gjaldtöku á ferðamannastöðum.
„Þessi umræða er m.a. í gangi á Alþingi og í ráðuneyti ferðamála og á mikið erindi við Sunnlendinga enda er Suðurland eitt fjölsóttasta ferðamannasvæði landsins. Það skiptir verulega máli fyrir landshlutann að afrakstur gjaldtökunnar muni skila sér í auknum fjármunum til uppbyggingar og verndunar á ferðamannastöðum á Suðurlandi,“ segir í tilkynningu.
Hægt er að taka þátt í könnuninni hér.