Viðræður um hugsanleg kaup Hveragerðisbæjar á Hitaveitu Hveragerðis eru á viðkvæmu stigi að sögn Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra Hveragerðis.
,,Við erum ennþá að skoða þetta með opnum hætti,“ sagði Aldís en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur, telja þeir hjá OR að boltinn sé nú hjá Hveragerðisbæ. Eins og komið hefur fram var kaupsamningur um hitaveitu Hveragerðis ótímabundinn. Í honum er gagnkvæmt uppsagnarákvæði þar sem hvor aðili um sig getur sagt honum upp með 15 ára fyrirvara. Skal þá meta eignir og miða við endurstofnverð og hlutfall aldurs af áætluðum líftíma eignanna.
Bæjarstjórn Hveragerðis hefur samþykkt heimild til samninga með eftirfarandi orðalagi um að Hitaveitu Hveragerðisbæjar verði ,,skilað aftur til Hvergerðinga gegn eðlilegu endurgjaldi.“ Eins og komið hefur fram í Sunnlenska þá telur OR að uppreiknað kaupverð og endurbætur nemi 1.018 milljónum króna og er það þeirra viðmið í viðræðunum.