Athugull vegfarandi sá til tveggja manna koma út um glugga á skemmtistaðnum Hvítahúsinu á Selfossi rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi og fara frá staðnum á bifreið.
Lögreglan fann bifreiðina í Ölfusi stuttu síðar en í henni voru tveir 17 ára piltar af höfuðborgarsvæðinu. Þeir voru handteknir og færðir í lögreglustöð til yfirheyrslu.
Þeir viðurkenndu að hafa brotist inn í Hvítahúsið í gærkvöldi og einnig í eitt skipti fyrr í vetur. Piltarnir stálu áfengi úr húsinu í gærkvöldi en skildu hluta þýfisins eftir fyrir utan húsið og einhverju komu þeir fyrir á leiðinni af vettvangi því þeir höfðu grun um að það væri verið að fylgjast með þeim.
Erindi þeirra austur á Selfoss að þessu sinni var að selja úlpu sem þeir höfðu tekið ófrjálsri hendi í heimahúsi í Kópavogi fyrir um tveimur vikum síðan.
Vegna aldurs piltanna var fulltrúi barnaverndar viðstaddur yfirheyrslu og foreldrar upplýstir um stöðu máls. Piltarnir voru samstarfsfúsir við að upplýsa málin.
UPPFÆRT KL. 09:56