Viðamiklar aðgerðir til að auka kolefnisbindingu og efla lífríki

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynntu í dag á blaðamannafundi í Elliðaárdalnum. Ljósmynd/Aðsend

Loftslagsávinningur af kolefnisbindingu og endurheimt votlendis eykst verulega með aðgerðum sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynntu í dag á blaðamannafundi í Elliðaárdalnum.

Kolefnisbinding víðs vegar um landið verður aukin til muna og er hún annar meginþáttur aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum.

Áætlað er að árlegur loftslagsávinningur af kolefnisbindingu og endurheimt votlendis verði um 50% meiri árið 2030 miðað við núverandi umfang með nýjum aðgerðum sem ráðist verður í næstu fjögur árin. Þá verði ávinningurinn um 110% meiri árið 2050 eða um 2,1 milljón tonn af CO2.

Hekluskógar og Þorláksskógar eflast til muna
Mikill fjöldi bænda og annarra landeigenda vinnur að landgræðslu og skógrækt auk félagasamtaka, fyrirtækja, sveitarfélaga og annarra. Áformin sem kynnt voru í dag miða við að árlegt umfang í verkefninu Skógrækt á lögbýlum tvöfaldist á árunum 2018-2022 og að umfang verkefnisins Bændur græða landið ríflega þrefaldist. Stuðningur úr Landbótasjóði Landgræðslunnar verður sömuleiðis aukinn verulega. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Landgræðslan og Skógræktin vinna nú sameiginlega að útfærslu á samstarfi ríkis og sauðfjárbænda um loftslagsvænni landbúnað í samstarfi við greinina og innan þess munu bændur geta unnið að samdrætti í losun frá búrekstri sínum og aukið kolefnisbindingu.

Verkefni á borð við Hekluskóga, Hólasand og Þorláksskóga verða efld til muna og nýjum verkefnum sem hafa endurheimt vistkerfa að markmiði verður hrundið af stað í samstarfi við sveitarfélög, landeigendur, samtök og fyrirtæki. Að auki verður stuðningur við frjáls félagasamtök aukinn en þau hafa í gegnum tíðina átt frumkvæði að fjölbreyttum landbótaverkefnum víða um land, m.a. með áherslu á fræðslu og starf sjálfboðaliða.

Loftslagsmálin á oddinn
„Ríkisstjórnin hefur sett loftslagsmálin á oddinn og markað þá stefnu að Ísland uppfylli ekki einungis markmið Parísarsamkomulagsins heldur hafi náð kolefnishlutleysi ekki seinna en árið 2040. Þær aðgerðir sem við kynnum hér í dag gegna ekki síst hlutverki við að ná því mikilvæga markmiði. Kolefnisbinding og endurheimt votlendis skipta miklu í baráttunni við loftslagsvána,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

 

 

Fyrri grein„Syngið þið fuglar“ í Strandakirkju
Næsta greinBIRNA syngur „Shallow“ í nýju myndbandi