Frumkostnaðaráætlun við viðbyggingu íþróttahússins í Hveragerði hljóðar upp á rúmlega 909 milljónir króna.
Áætlunin var tekin fyrir á síðasta fundi bæjarráðs og miðast upphæðirnar við verðlag í desember síðastliðnum. Vikmörk eru -10% í neðri mörkum en +30% í efri mörkum.
„Ljóst er að stækkunin er mikið framfarastökk í aðstöðu íþróttaiðkunar í bænum, um leið og tímanýting í byggingunni í heild sinni verður mun betri. Heilt yfir verður nýja byggingin, með viðbættri stækkun, bylting í aðstöðu til íþróttaiðkunar í Hveragerði,“ segir í bókun bæjarráðs.
Á fundi bæjarráðs var samþykkt að halda áfram vinnu við tillögu Íþróttafélagsins Hamars um stækkun á húsinu og var bæjarstjóra falið að setja tillöguna í deiliskipulagsferli.
Bæjarráð samþykkti einnig að verkinu verði hraðað eins og kostur er, t.d. að athugað verði hvort hægt sé að hefja framkvæmdir við jarðvinnu fyrir grunn byggingarinnar á meðan breyting á deiliskipulagi er unnin.
Í viðbyggingunni, sem verður um 2.000 fm, er gert ráð fyrir nýjum keppnissal, fimleikagryfjum, áhorfendastúkum, ásamt nýju anddyri, búningsklefum og geymslum.