Viðgerð mun taka nokkra daga

Skriðufall við Hafursey. Ljósmynd/Stefán Haukur

Líklegt þykir að miklir vatnavextir og leysingar á Suðurlandi í gær og nótt séu valdur að bilun sem kom upp og olli rafmagnsleysi í Vík og Mýrdal um klukkan hálf 3 í nótt.

Bilunin er í Víkurstreng sem liggur undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli. Starfsfólk RARIK var sent af stað til Víkur í nótt en erfið færð var á svæðinu og vegir lokaðir. Samráð var haft við björgunarsveitir áður en farið var inn á lokunarsvæðið.

Ekki hefur gengið sem skyldi að keyra upp varaaflsvélar sem þegar eru á svæðinu. Efri byggð Víkur er með rafmagn sem kemur frá varatenginu frá Klaustri en erfiðara hefur gengið að koma stöðugu rafmagni á neðri byggðina og Mýrdalinn.

Von er á öflugum varaaflsvélum frá Landsneti til Víkur um hádegi og búist er við að geta komið tryggu rafmagni á hjá fleiri viðskiptavinum RARIK um leið og búið er að tengja þær. Slík tenging tekur um 30-60 mínútur eftir að vélin er komin á staðinn.

Bilanaleit á Víkurstreng hefur reynst erfið vegna veðurs og vatnavaxta en þó er búið að þrengja það svæði sem bilanaleitin fer fram á og er það nú á u.þ.b. 12 km kafla frá Holti.

Vík og Mýrdalur verða keyrð á varaafli þar til búið er að gera við bilunina en samkvæmt upplýsingum frá RARIK gæti viðgerðin tekið nokkra daga.

RARIK biður íbúa að fara sparlega með rafmagn meðan varaflskeyrsla stendur yfir, t.d. sleppa því að hlaða rafbíla eða nota orkufrek tæki og slökkva á og jafnvel taka úr sambandi rafmagnstæki til að minnka álag á kerfið.

Fyrri greinJólastund í Skálholti í kvöld
Næsta greinBilunin í strengnum undir Skógá