IÐAN fræðslusetur efnir til viku símenntunar í iðnaði á Suðurlandi 23. – 27. september. Í boði verður fjöldi námskeiða, kynning á iðn- og verknámi auk þess sem starfsmenn IÐUNNAR munu heimsækja vinnustaði.
Í tengslum við vikuna verður haldið málþing á Hótel Selfossi þann 27. september kl. 13.00 – 17.00 undir yfirskriftinni „Atvinnutækifæri til framtíðar“.
Á málþinginu verður fjallað um uppbyggingu atvinnulífs og framboð á menntun í framtíðinni á Suðurlandi. Fyrirlesarar mun greina frá þeirri uppbyggingu og nýsköpun sem þegar hefur átt sér stað og framtíðarsýn fyrir svæðið.
Málþingið er opið öllum á meðan húsrúm leyfir.
Skráning á námskeið og nánari upplýsingar um vikuna má finna hér.