Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir 1. sætinu á lista flokksins í Suðurkjördæmi í prófkjöri þann 29. maí næstkomandi.
Vilhjálmur greindi frá þessu á Facebooksíðu sinni í morgun.
„Það er mikilvægt að ný kynslóð hasli sér völl og taki forystu í þeim verkefnum sem framundan eru. Þess vegna vil ég leiða framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og óska eftir fyrsta sætinu í prófkjörinu þann 29. maí næstkomandi. Ég hef metnað, reynslu og þekkingu til að leiða lista sjálfstæðismanna. Ég er reiðubúinn að vera bæði verkstjóri og liðsmaður í góðu teymi sjálfstæðisfólks sem ætlar að ná góðri uppskeru fyrir Suðurkjördæmi og landið allt,“ segir Vilhjálmur.