Villtur ferðalangur á Fimmvörðuhálsi

Björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli og Vík í Mýrdal hafa í kvöld leitað ferðalangs er var villtur á Fimmvörðuhálsi. Hringdi hann í Neyðalínu eftir aðstoð á sjötta tímanum í dag.

Sagðist hann hafa gengið í átta tíma, vera á merktri gönguleið í svartaþoku og orðinn þreyttur og skelkaður. Einnig sagði hann stutt í að sími hans yrði straumlaus og rofnaði símtalið áður en neyðarvörður gat óskað eftir meiri upplýsingum. Eftir það náðist ekki samband við manninn.

Göngumenn frá björgunarsveitum fóru á hálsinn auk þess sem leitað var á bílum og snjósleðum. Leitarmenn fóru bæði upp frá Básum og frá Skógum. Var lögð áhersla á að leita fyrst þekktar gönguleiðir og stíga en leitaraðstæður voru frekar erfiðar vegna þokunnar.

Það voru svo menn frá Útivist sem voru í Fimmvörðuskála sem fundu manninn við fystu vörðu innan hans. Samkvæmt fyrstu upplýsingum var hann heill á húfi. Er hann nú kominn í skála og verður fluttur til byggða í kvöld.

Fyrri grein„Við létum boltann flæða“
Næsta greinÓlafur og Dorrit á Lundi