Nokkrir vinir Hafliða Magnússonar á Suðurlandi heiðruðu minningu hans með samkomu í Bókakaffinu á Selfossi á 80 ára afmælisdegi hans þann 16. júlí sl. en Hafliði lést 25. júní 2011.
Á afmælisdeginum kom verðlauna krossgáta í Sunnlenska fréttablaðinu eftir Hafliða en hann samdi mjög vinsælar krossgátur fyrir blaðið í um áratug.
Vestfirska forlagið á Þingeyri gaf bækur til verðlauna í krossgátunni en Hafliði var dugmikill liðsmaður forlagsins alla tíð.
Dregið hefur veriðúr innsendum lausnum og þessir eru vinningshafar:
Grétar B. Þorsteinsson á Selfossi,
Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir í Kópavogi,
Sigrún Þorsteinsdóttir á Stóra-Hálsi í Grafningi,
Óskar H. Ólafsson á Selfossi,
Ásdís Kristinsdóttir, Miðkoti í Landeyjum,
Steinunn Eyjólfsdóttir á Selfossi,
Guðfinna Sveinsdóttir á Eyrarbakka
og Gróa Björnsdóttir á Ísafirði
Þakkir til þeirra sem tóku þátt og hamingjuóskir til vinningshafa.
Allir vinningshafar hafa fengið verðlaunin sem eru tvær af bókum Hafliða Magnússonar; Saltstorkin bros og Engill ástarinnar.