Yfirvofandi er að vinnuafl muni skorta í skógrækt á Íslandi á komandi sumri vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Um 15 til 20 erlendir háskólanemar hafa starfað hjá Skógrækt ríkisins undanfarin sumur og fengið vinnuna metna til náms en nú er ekki útlit fyrir að mögulegt verði að fá erlenda háskólanema í þessi störf þetta árið vegna ferðatakmarkana.
Morgunblaðið greinir frá þessu og vitnar í Hrein Óskarsson, sviðsstjóra samhæfingarsviðs Skógræktarinnar. Erlendu nemarnir hafa unnið allt frá tveimur vikum og upp í þrjá mánuði hjá Skógræktinni en vinnuna fá þeir metna til eininga fyrir nám sitt.
„Það koma líklega engir í ár, það bara gengur ekki upp að fá fólk sem þarf að fara í sóttkví,“ segir Hreinn í Morgunblaðinu.