Vinnuslys í Gnúpverjahreppi

Vinnuslys varð á sveitabæ í gamla Gnúpverjahreppi á mánudag þegar rúllubaggagreip sem verið var að losa af gálga dráttarvélar valt og spjót hennar rakst í mann.

Maðurinn hlaut töluverða áverka og var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík.

Fyrri greinSvekkjandi tap í Sandgerði
Næsta greinTrippi drap tófu