Wolt hóf sendingar á Selfossi og í Hveragerði í nóvember árið 2023 en í þessari viku byrjaði sendingarþjónustan að senda mat frá Selfossi á Stokkseyri og Eyrarbakka.
Með því að fjölga afhendingarstöðum gefur Wolt íbúum þéttbýlisstaðanna í Árborg og nærliggjandi bæja meðfram veginum tækifæri til að njóta þægindanna sem sendingarþjónustan býður upp á.
Með stækkuninni geta viðskiptavinir á Stokkseyri og Eyrarbakka því pantað frá sextán vinsælum stöðum á Selfossi sem hafa ýmist verið lengi í uppáhaldi hjá heimamönnum eða eru nýjir og alþjóðlegir. Tilgangur framtaksins er að auka þægindi íbúa í Árborg og styðja við aukinn vöxt veitingastaða og fyrirtækja á Selfossi.
„Við erum himinlifandi yfir því að bæta Stokkseyri og Eyrarbakka við hóp afhendingarstaða og gera íbúum þannig kleift að njóta síns uppáhalds matar frá Selfossi án þess að þurfa að fara úr húsi. Stækkunin er hluti af markmiði okkar sem snýr að því að tengja samfélög og styðja við staðbundin fyrirtæki um allt Ísland,“ segir Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi.
Mest pantaði maturinn
Á síðasta ári var steiktur kjúklingur vinsælasti rétturinn á Selfossi, en heilt yfir Ísland voru hamborgarar vinsælastir. Þrír vinsælustu veitingastaðirnir (ekki í sérstakri röð) voru Menam, KFC og Röstí. Allir ættu þó að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar sem veitingastaðir á Selfossi bjóða upp á hamborgara, fisk, núðlur, pasta og grillmat, svo fátt eitt sé nefnt. Til viðbótar við að panta frá veitingastöðum geta íbúar Stokkseyrar og Eyrarbakka nú pantað snarl og matvöru frá Krambúðinni ásamt bakkelsi frá GK bakaríi.