Hátt í 3.000 jarðskjálftar mældust á Íslandi í september og rúmlega helmingur þeirra átti upptök á Hellisheiði. Mikil virkni var einnig í Mýrdalsjökli í september, sú mesta frá árinu 1999.
Þetta kemur fram í jarðskjálftayfirliti Veðurstofunnar.
Yfir 480 jarðskjálftar mældust innan Kötluöskju í september. Slík skjálftavirkni hefur ekki sést frá a.m.k. 1999. Stærsti jarðskjálftinn, 3,4 stig, varð 21. september kl. 10:56 og átti upptök 5,8 kílómetrum norður af Hábungu. Allir skjálftarnir í öskjunni voru á innan við 5 kílómetra dýpi. Þann 6. september varð lítið hlaup í Múlakvísl og sama dag mældust yfir 30 jarðskjálftar innan öskjunnar.
Um 43% mældra jarðskjálfta í Mýrdalsjökli áttu upptök undir norðausturhluta Kötluöskju en 13% við Goðabungu. Skjálftavirkni við Goðabungu er yfirleitt mest á haustin en fjöldi skjálfta nú í september er óvenju lítill miðað við fyrri ár.
Fimm skjálftar mældust undir og suður af Langjökli, sá stærsti tvö stig.
Á Suðurlandsundirlendinu mældust nokkrir tugir skjálfta, þeir stærstu um 1,5 stig. Upptök skjálftanna voru meðfram þekktum sprungum á svæðinu.
Í september mældust margar skjálftahrinur við Hellisheiðarvirkjun í kjölfar þess að teknar voru í notkun nýjar niðurdælingarholur við virkjunina. Um 1500 skjálftar mældust, flestir litlir, um og innan við einn, en stærri skjálftar mældust einnig. Stærstu skjálftarnir fundust í Hveragerði og sá stærsti, 3,4 stig, sem varð 23. september, fannst einnig á höfuðborgarsvæðinu. Frumniðurstöður úrvinnslu benda til þess að skjálftarnir raðist á a.m.k. 2-3 sprungur og að stefna þeirra sé austan við norður. Skjálftar hafa áður mælst við borun og prófun á borholum síðustu misseri en aldrei annar eins fjöldi og nú.