Zodiac slöngubát og kerru var stolið frá sumarbústað í Kiðjabergslandi í Grímsnesi um miðjan febrúar.
Þjófnaðurinn átti sér stað á tímabilinu frá hádegi fimmtudaginn 16. febrúar til föstudagsins 17. febrúar síðastliðinn.
Lögreglan biður þá sem veitt geta upplýsingar um hvarf bátsins og kerrunnar að hafa samband í síma 480 1010.