Þór Þorlákshöfn má enn bíða eftir sínum fyrsta deildarsigri í DHL Höllinni en lærisveinar Benedikts Guðmundssonar lutu þar í lægra haldi í kvöld 88-83 gegn KR.
Röndóttir heimamenn voru sterkir á lokasprettinum og ljóst að gestirnir söknuðu sárlega Grétars Inga Erlendssonar og Emils Karels Einarssonar sem eru frá vegna meiðsla. Að sama skapi fengu KR-ingar veglegt framlag frá flestum sínum liðsmönnum og skipti það sköpum þegar í harðbakka sló. Vítin vildu ekki niður hjá Þór á ögurstundu og reyndist það þeim dýrkeypt þetta sinnið.
Þór er nú í 3. sæti deildarinnar með 22 stig en hefðu getað blandað sér inn á toppinn með Snæfell og Grindavík með sigri í kvöld.
Þórsarar byrjuðu betur og komust í 9-15 þar sem Darrell Flake var m.a. með tvo stolna bolta í röð og einn maraþonvals þar sem hann reif í sig frákast, dansaði upp völlinn og lokaði stigunum tveimur með öruggu sniðskoti, díselkagginn í urrandi formi! KR-ingar svöruðu með 9-0 áhlaupi en staðan var jöfn 23-23 að loknum fyrsta leikhluta.
Fyrstu mínúturnar í öðrum leikhluta voru fremur óreiðukenndar, Flake hélt Þór við efnið og gerði 6 af 10 fyrstu stigum gestanna í leikhlutanum en KR var skrefinu á undan. KR virtist ætla að loka leikhlutanum með látum en þá tók Ben Smith við sér í liði Þórs. Gestirnir tóku 4-10 lokasprett þar sem Smith var beittur og staðan 44-43 í hálfleik fyrir KR.
David Jackson fékk sína fjórðu villu í upphafi síðari hálfleik hjá Þór og fór fremur varlega eftir það en hékk þó inni það sem eftir liðfi leiks án þess að fá sína fimmtu villu. Liðin skiptust á forystunni en Smith kom Þór í 65-64 með stökkskoti í KR teignum þegar um tvær sekúndur voru eftir af leikhlutanum. Þór fór því með meðbyrinn inn í fjórða leikhluta.
Þórsurum gekk illa að skora í upphafi fjórða en það gerði þó Smith eftir tæpa tvær og hálfa mínútu þegar hann setti niður þrist og kom Þór í 68-69. Þannig var fjórði leikhluti, æsispennandi þar sem liðin skiptust á forystunni. KR komst í 79-75 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir en Þórsarar skoruðu þá fimm stig í röð og breyttu stöðunni í 79-80 þegar tvær og hálf mínúta voru eftir á klukkunni.
Þórsurum gekk illa á vítalínunni í lokin og þeir komust ekki nær en 84-82 en KR-ingar gerðu vel í að klára leikinn og fengu gott framlag frá mun fleiri leikmönnum en Þórsarar.
Ben Smith skoraði 31 stig í kvöld og Darrell Flake sýndi gamla og góða takta með 25 stig og 11 fráköst. David Jackson skoraði 14 stig, Guðmundur Jónsson 8 og Darri Hilmarsson 5.
Þórsarar eru nú komnir í frí þar sem Poweradebikarúrslitin fara fram næsta laugardag. Næsti leikur Þórs er gegn KFÍ þann 21. febrúar.