Ægir vann góðan sigur á Vængjum Júpíters í 3. deild karla í knattspyrnu þegar liðin mættust í Þorlákshöfn í kvöld.
Oliver Gylfason kom Ægi yfir á 22. mínútu og Guðmundur Garðar Sigfússon bætti við öðru marki á 42. mínútu. Staðan var 2-0 í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var í járnum lengst af en Ægismenn bættu við tveimur mörkum undir lokin. Guðmundur Garðar skoraði aftur á 81. mínútu og Pálmi Þór Ásbergsson slapp í gegn í uppbótartímanum og renndi boltanum glæsilega framhjá Axel Erni Sæmundssyni, markverði Vængjanna, sem kom engum vörnum við.
Ægir hefur nú 18 stig í 7. sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir.