Ægir Atlason fimleikamaður frá Skálarima var valinn íþróttamaður Flóahrepps árið 2012 við hátíðlega athöfn í Þingborg síðastliðinn föstudag.
Það voru formenn ungmennafélaganna Baldurs, Vöku og Samhygðar ásamt æskulýðs- og tómstundanefnd Flóahrepps sem völdu Ægi íþróttamann ársins.
Ægir er 14 ára fimleikamaður og kemur úr fimleikadeild Umf.Selfoss. Á árinu hefur hann keppt með blönduðu liði Selfoss sem og karlaliði Selfoss en einnig keppti hann með unglingalandsliði Íslands í blönduðum flokki á Evrópumótinu í Árósum í Danmörku 19.-20.október 2012.
Ægir er nemandi í Flóaskóla en byrjaði ungur að æfa með fimleikadeild Selfoss og sýndi fljótt hvers megnugur hann er. Hann hefur frá því hann byrjaði að æfa tekið jöfnum framförum og verið fljótur að tileinka sér ný stökk og æfingar. Hann hefur ávallt verið í fremstu röð í sínum aldursflokki og leitt hópinn sinn áfram í gegnum keppnir.
Á Evrópumótinu í haust var hann yngstur í landsliðinu en aðrir drengir í liðinu voru 17 ára. Hann gaf þeim þó ekkert eftir og kom sér í þrjár keppnisumferðir á dýnu en aðeins þrír strákar stökkva hverja umferð ásamt þremur stúlkum. Liðið hafnaði í 4.sæti í samanlögðum stigum.