Selfyssingar unnu frábæran sigur á FH í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur í Vallaskóla urðu 24-23 og Selfoss fór upp í 5. sæti deildarinnar með 12 stig.
„Þetta var eins og það gerist best. Þetta var ein Selfossliðsheild í kvöld og ég vil fyrst og fremst þakka áhorfendunum sem voru frábærir. Strákarnir eru þakklátir fyrir þennan góða stuðning. Það var stress og spenna á lokakaflanum en við náðum vörslum og menn voru til í að taka af skarið. Við ætluðum ekki að tapa þessum leik og við áttum sigurinn virkilega skilið,“ sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss, í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
Selfyssingar pökkuðu FH-ingum saman í fyrri hálfleik og staðan var 12-7 í leikhléi. Leikurinn jafnaðist í seinni hálfleik og þegar sex mínútur voru eftir jafnaði FH 20-20. Sölvi Ólafsson varði hins vegar vel á lokakaflanum og Haukur Þrastarson og Teitur Örn Einarsson tóku frumkvæðið í sókninni og skoruðu mikilvæg mörk.
Teitur Örn var markahæstur Selfyssinga með 8/4 mörk. Haukur skoraði 6 mörk og átti frábæran leik, bætti við 7 stoðsendingum og 16 stöðvunum í vörninni. Atli Ævar Ingólfsson var líka drjúgur með 4 mörk af línunni. Hergeir Grímsson skoraði 3 mörk, Sigurvin Ármannsson 2 og Einar Sverrisson 1.
Sölvi Ólafsson varði 13 skot í marki Selfoss og var með 39% markvörslu og Helgi Hlynsson varði 3 skot, þar af tvö vítaskot og var með 75% markvörslu.