Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson stýrði norska kvennalandsliðinu í handbolta til sigurs á heimsmeistaramótinu í gær í annað sinn. Noregur vann Holland 31-23 í úrslitaleiknum.
Norska liðið gerði út um leikinn í fyrri hálfleik en staðan var 20-9 í leikhléi.
Þetta er i annað sinn Þórir verður heimsmeistari með norska liðinu en það vann titilinn undir hans stjórn í Brasilíu árið 2011. Þetta er þriðji heimsmeistaratitill Norðmanna.
Þórir hefur stýrt norska liðinu frá árinu 2009 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins í átta ár. Hann hefur náð frábærum árangri með liðið sem er í dag handhafi allra þriggja stóru titlanna. Noregur varð Evrópumeistari í fyrra, Ólympíumeistari árið 2012 og nú heimsmeistari.
Auk þess vann Þórir brons á HM með norska liðinu árið 2009, gull á EM 2010 og silfur á EM 2012.