Fyrr í dag tilkynnti Alþjóða handknattleikssambandið um útnefningu á þjálfarum ársins. Þórir Hergeirsson þjálfari norska kvennalandsliðsins var valinn ásamt Degi Sigurðssyni, þjálfara þýska karlalandsliðsins.
Þeir Dagur og Þórir fengu flest atkvæði í kjörinu sem sérstök dómnefnd valdi ásamt almenningi.
Þórir er 51 árs gamall Selfyssingur. Hann þjálfaði fyrst í Noregi hjá Elverum, Gjerpen og Nærbø IL en frá 2001 hefur Þórir verið í starfsliði norska kvennalandsliðsins. Árið 2009 tók hann við sem þjálfari liðsins.
Undir stjórn Þóris hefur norska kvenna landsliðið unnið 2 heimsmeistaratitla (2011 og 2015), 2 Evrópumeistaramótstitla (2010 og 2014) ásamt því að verða Ólympíumeistarar í London 2012.
Þórir hlaut 48,8% atkvæðanna en þetta er í fjórða skipti sem hann er valinn þjálfari ársins.