Þórsarar semja við Carberry

Körfuknattleiksdeild Þórs í Þorlákshöfn hefur samið við bakvörðinn Tobin Carberry um að leika með liðinu í Domino's-deild karla á næstkomandi vetri.

Carberry lék síðustu tvö ár með Hetti frá Egilsstöðum. Hann er 190 cm á hæð og skoraði 28,2 stig að meðaltali með Hetti síðasta vetur en auk þess tók hann 9,3 fráköst, gaf 5,0 stoðsendingar og stal 2,3 boltum í leik.

Einar Árni Jóhannsson þjálfari Þórs segist ánægður með komu Tobin Carberry. „Tobin er sterkur alhliða bakvörður sem að þekkir deildina hér heima vel. Hann lék mjög vel fyrir Hött á þessum tveimur árum sem hann lék með þeim og við teljum hann leikmann sem muni virka vel fyrir okkur. Hann er sterkur á hringinn og öflugur að búa til fyrir samherja sína og er auk þess flottur varnarmaður. Það fer einnig af honum þannig orð að hann sé frábær karakter sem að skiptir miklu máli í þessu. Það ríkir mikil ánægja með að fá þennan flotta íþróttamann til liðs við okkur.“

Carberry segist sjálfur vera mjög spenntur fyrir að leika með Þór og þakklátur fyrir tækifærið til að gera eitthvað sérstakt með liðinu á næsta tímabili. „Ég hef heyrt frábæra hluti um Þórsliðið, umgjörðina, stuðningsmennina, starfsfólkið og leikmennina og ég get ekki beðið eftir að byrja í Þorlákshöfn.“

Carberry er væntanlegur í Höfnina um miðjan ágúst.

Fyrri greinFjóla fékk brons í Svíþjóð
Næsta greinLét hnefana tala í atvinnuviðtali