Selfoss vann gríðarlega mikilvægan útisigur á KR í Pepsideild kvenna í knattspyrnu í kvöld og færði sig þar með af hættusvæðinu á stigatöflunni.
„Við vorum vel skipulagðar og gerðum það sem við lögðum upp með. Það var erfitt að búa til færi í sóknarleiknum en við náðum leysa það í lok fyrri hálfleiksins. Svo var bara þvílík barátta í KR liðinu í seinni hálfleik og við þurftum að berjast þvílíkt fyrir þessu,” sagði Magdalena Reimus, markaskorari Selfoss, í viðtali við mbl.is eftir leik.
Lokatölur urðu 0-1 en Magdalena skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Selfyssingar voru mun sterkari í fyrri hálfleik og forystan í leikhléi var verðskulduð.
Selfoss hafði áfram góð tök á leiknum í síðari hálfleik en KR-ingar komust betur inn í leikinn á lokakaflanum sem var mjög spennandi. Selfossvörnin hélt en bæði lið fengu reyndar prýðileg marktækifæri á lokamínútunum.
Selfoss hefur nú 12 stig í 7. sæti deildarinnar en KR situr eftir í fallsæti, 9. sætinu, með 6 stig.