Samtals voru sett 221 héraðsmet í frjálsum íþróttum á síðasta ári og hafa aldrei verið sett jafn mörg met á einu ári innan Héraðssambandsins Skarphéðins.
Líkt og undanfarin ár hefur Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, uppfært metaskrár HSK í frjálsíþróttum í öllum flokkum frá 11 ára aldri, bæði innan- og utanhúss. Einnig var afrekaskrá fyrir fatlaðra uppfærð.
Dagur Fannar Einarsson keppandi í 15 ára setti 19 einstaklings HSK met á árinu og setti auk þess 14 boðhlaupsmet með félögum sinnum, eða samtals 33 met. Eva María Baldursdóttir Selfossi, sem keppti í 14 ára flokki, setti samtals 26 HSK met.
Næst kom Sindri Freyr Seim Sigurðsson úr Umf. Heklu. Hann keppti í 14 ára flokki og setti 13 einstaklingsmet og 11 boðhlaupsmet, eða samtals 24 met. Hann setti auk þess flest Íslandsmet keppenda HSK á árinu, eða þrjú einstaklingsmet og eitt boðhlaupsmet.
Guðrún Heiða Bjarnadóttir, keppandi í 20 – 22 ára flokki og Bríet Bragadóttir, keppandi í 15 ára flokki, settu flest HSK met í fullorðinsflokki, en þær settu báðar tvö met í kvennaflokki. Auk þess setti Bríet 15 met í yngri flokkum og Guðrún Heiða setti auk þess fimm met í sínum flokki.
Guðmundur Nikulálsson sett flest met í öldungaflokkum, en hann setti 15 met á árinu í flokki 55 – 59 ára. Árni Einarsson setti 10 met í flokki 85 – 89 ára. Hann var sá elsti sem setti met á árinu, en hann varð 86 ára á árinu.
Hulda Sigurjónsdóttir Suðra var sú eina sem setti HSK met í flokkum fatlaðra á árinu, eða þrjú talsins.
HSK metaskrár, þar sem einnig má sjá yfirlit allra HSK meta sem sett voru á síðasta ári má nálgast á vef HSK.