Átta iðkendur frjálsíþróttadeildar Selfoss sóttu landsliðsæfingar Úrvalshóps Frjálsíþróttasambands Íslands í Laugardalnum í gær.
Mikill metnaður var á æfingunum en sérhæfðir þjálfarar voru með hverja grein á morgunæfingu. Því næst var hádegismatur í boði FRÍ í Laugardalnum og að honum loknum voru tveir frábærir fyrirlestrar. Sá fyrri var um næringarfræði hjá Fríðu Rún Þórðardóttur og sá síðari hjá Pálmari Ragnarssyni um jákvæð samskipti. Í lok dags var þrek og boðhlaupsæfing.
Þessir krakkar fara nú á fullt í að klára undirbúningstímabilið fyrir sumarið og verður spennandi að fylgjast með þeim á keppnistímabilinu.