Ægir tapaði í Akraneshöllinni

Atli Rafn Guðbjartsson skoraði fyrir Ægi. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Ægir lék sinn síðasta leik í B-deild deildarbikars karla í knattspyrnu í dag þegar liðið heimsótti Kára í Akraneshöllina.

Atli Rafn Guðbjartsson kom Ægi yfir á 18. mínútu og staðan var 0-1 í hálfleik. Káramenn reyndust sterkari í seinni hálfleiknum, þeir jöfnuðu á 62. mínútu og skoruðu svo sigurmarkið sjö mínútum fyrir leikslok.

Ægir lauk keppni í 3. sæti síns riðils með 9 stig en Kári vann alla sína leiki og fer í úrslitakeppnina.

Fyrri greinStjarnan sterkari á lokakaflanum
Næsta greinKFR náði í stig – Uppsveitir mættu ekki til leiks