Ægismenn unnu 1-0 sigur á ÍH í 3. deild karla í knattspyrnu í kvöld. Eftir fjóra leiki situr Ægir í 2. sæti deildarinnar með 8 stig en liðin fyrir neðan eiga leik flest leik til góða.
Ervist Pali skoraði eina mark leiksins á Þorlákshafnarvelli í kvöld á 34. mínútu og þar við sat.
Ægismenn eru því áfram taplausir í deildinni en þeir hafa unnið tvo leiki og gert tvö jafntefli.