Allir fimm keppendur Ungmennafélags Selfoss unnu til verðlauna í júdókeppni Reykjavik International Games, sem fram fór í Laugardalshöllinni um þarsíðustu helgi.
Keppendurnir frá Selfossi sýndu glæsileg tilþrif. Egill Blöndal og Úlfur Þór Böðvarsson mættust í úrslitaglímunni í -90 kg flokki og þar hafði Egill betur. Hann tók því gullið í flokknum og Úlfur hlaut silfurverðlaun.
Vésteinn Bjarnason nældi í silfurverðlaun í -66 kg flokki á sínu fyrsta móti í flokki fullorðinna. Jakob Tomczyk fékk brons í -73 kg flokki eftir mikla keppni og Breki Bernhardsson fékk einnig brons í -81 kg.