Andri Már Óskarsson, Umf. Selfoss, bætti HSK-metið í 10 km götuhlaupi í flokki 11 ára í Brúarhlaupinu á Selfossi þann 10. ágúst síðastliðinn.
Andri Már kom fyrstur í mark í flokki 14 ára og yngri á tímanum 45,55 mín. Hann átti sjálfur gamla metið í 11 ára flokknum, sem var 48,03 mín.