Uppskeruhátíð hlaupahópsins Frískra Flóamanna var haldin í Tryggvaskála á Selfossi um síðustu helgi.
Að venju voru veittar viðurkenningar til hlaupara. Arna Ír Gunnarsdóttir var valin kvenhlaupari ársins og Vigfús Eyjólfsson karlhlaupari ársins.
Arna Ír náði feiknagóðum árangri í keppnishlaupum á árinu, bæði í götu- og utanvegahlaupum. Fór 21 km í Miðnæturhlaupinu og náði þar sínum besta tíma. Arna Ír varð þriðja í sínum aldurflokki í Laugaveginum. Hún setti tvö HSK- og Selfossmet í sínum aldursflokki á árinu, í hálfmaraþoni í Reykjavík og í Laugavegshlaupinu.
Vigfús byrjaði að stunda hlaup árið 2009 og fór þá fljótlega að hlaupa með Frískum Flóamönnum. Hefur alla tíð verið mög duglegur að taka þátt í keppnishlaupum. Vigfús bætti sig um 20 mín á Laugavegshlaupinu í sumar þrátt fyrir mótvind og erfiðar aðstæður.
Óskar Helgi Guðnason og Auður Ólafdóttir fengu viðurkenningu fyrir mestu framfarir.
Æfingar Frískra Flóamanna eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15 og kl. 10:00 á laugardögum. Hlaupið er frá Sundhöll Selfoss og eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir, ekkert gjald. Þjálfari í fjölbreyttum æfingum er Sigmundur Stefánsson.