Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram í Laugardalshöllinni um síðustu helgi og tóku sjö keppendur af sambandssvæði HSK þátt. Enginn þeirra náði að vinna til verðlauna að þessu sinni.
Eitt HSK met var sett á mótinu. Ástþór Jón Tryggvason, Umf. Selfoss, setti met í 1.500 metra hlaupi í flokki 18- 19 ára, en hann hljóp á 4:35,46 mín.
Þar með bætti hann 30 ára gamalt met Gunnlaugs Karlssonar, en met hans var 4;37,1 mín.