Sebastian Alexandersson, handknattleiksþjálfari, segist stoltur af framlagi sínu til handboltans á Selfossi og óskar félaginu alls hins besta í framtíðinni.
Sebastian og Zoran Ivic var sagt upp störfum sem þjálfarar kvennaliðs Selfoss um síðustu helgi. Sebastian hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna starfsloka sinna en hann hefur þjálfað á Selfossi frá því í maí 2003 og lætur af störfum í dag eftir tæp fjórtán ár sem starfsmaður félagsins.
„Á þessum tíma hef ég kynnst frábæru fólki hvort sem það eru leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, stuðningsmenn, styrktaraðilar, aðstandendur eða samstarfsaðilar sem vert væri að þakka sérstaklega en listinn er of langur,“ segir Sebastian og vill þakka Selfossi sérstaklega fyrir tækifærið sem félagið hefur gefið honum á þessum tíma.
„Þökk sé þeim þá er ég í dag jafnvígur á karlaþjálfun, kvennaþjálfun, yngriflokkaþjálfun og sérþjálfun. Það eru fáheyrð forréttindi að hafa fengið svo mörg tækifæri innan sama félagsins. Einnig vill ég þakka samstarfsmanni mínum Zoran Ivic sérstaklega fyrir samstarfið í vetur. Það hefur verið ákaflega lærdómsríkt að kynnast öðrum áherslum og sjónarmiðum sem hafa bæði víkkað sjóndeildarhring minn og aukið þekkingu mína sem þjálfara.“
Sebastian segist stoltur af framlagi sínu til uppbyggingar karlaboltans á árunum 2003-2011.
„Ég er mjög stoltur af því að hafa tekið þátt í búa til akademíu sem virkar. Þá er ég sérstaklega stoltur af því að hafa lagt mitt að mörkunum við að búa til samkeppnishæft kvennalið á aðeins 5 árum eftir að félagið hafði ekki verið með kvennalið í tæp 20 ár. En það sem gleður mig þó mest er að ég get skilið við félagið á betri stað en það var á þegar ég kom til þess,“ segir Sebastian ennfremur í tilkynningunni.
„Að lokum vill ég óska leikmönnum félagsins alls hins besta í komandi leikjum. Ég óska stjórn félagsins alls hins besta við áframhaldandi uppbyggingu þessa flotta félags og ég óska samstarfsfólki mínu alls hins besta í því sem þeir eru að gera eða taka sér næst fyrir hendur.“